been fuelin' up on cocaine and whiskey

fimmtudagur, janúar 29, 2004


Virkilega góð kvikmynd í alla staði

Smelltu ? myndina til ad st?kka Ónafngreindur fjölskyldumeðlimur bað mig um að koma með sér í kvikmyndahús. Ég jánkaði þessu boði heilshugar enda ókurteisi að hlaupast undan þá sjaldan sem einhver nennir að koma með manni í bíó. Ég hafði ekki minnstu hugmynd um hvað myndin kæmi til með að heita né því síður um hvað hún fjallaði en ákvað samt að láta slag standa og drífa mig með viðkomandi. Kannast einhver við leikstjórann Alejandro González? Nei, ég hélt ekki. Þessi mikli snillingur gerði myndina Amores Perros ( Love's a ***** ). Í þessari nýju mynd frá kappanum sem heitir 21grams hefur hann fengið til liðs við sig þrjá fína leikara, Sean Penn, Benicio Del Toro og Naomi Watts. Einstaklega skemmtilegt hvernig myndin flakkar í tíma, fram og tilbaka, aftur á bak og áfram. Það má eiginlega segja að hún sé nákvæmlega eins uppbyggð og Amores Perros. Það eru þrjár sögur í gangi, við fáum að fylgjast með lífi þriggja ólíkra persóna og svo sameinast þessar persónur á ákveðnum tímapunkti í myndinni. Umfjöllunarefni myndarinnar er ástvinamissir, hefnd, hatur, fyrirgefning og hvernig við þurfum að sætta okkur við þá staðreynd að lífið heldur áfram þó svo að glíma þurfi við mótlæti. Mér finnst þetta afskaplega velheppnað handrit, leikararnir alveg framúrskarandi enda komst ég að því að bæði Sean Penn og Naomi Watts eru tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir leik sinn. Dramatískt meistaraverk sem lætur engan ósnortin.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger