been fuelin' up on cocaine and whiskey

þriðjudagur, janúar 20, 2004


Nú fer fjörið að byrja

Smelltu á myndina til ad stækka Strákarnir okkar í handbolta eru komnir til Slóveníu og eiga þar að etja kappi við heimamenn á fimmtudagskvöld. Þjóðin er bjartsýn á góðan árangur enda er Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari með sterkt og leikreynt lið í höndunum. Undirbúningurinn hefur gengið framar vonum. Við tókum Dani í kennslustund, töpuðum reyndar fyrir Svíum með einu ( það er enginn skömm ) og unnum Egypta. Strákarnir hafa sett sér skýrt markmið fyrir þessa keppni sem framundan er, að vinna riðilinn en þess má til gamans geta að við erum í riðli með Slóvenum, Tékkum og Ungverjum. Allt eru þetta þjóðir sem kunna sitthvað fyrir sér í handbolta og við megum alls ekki vanmeta. Það er gríðarlega erfitt að spá fyrir um okkar fyrsta leik gegn gestgjöfum Slóvena sem hafa á að skipa heimsklassa leikmönnum í flestum stöðum. Eitt er þó víst, þetta verður rosalega spennandi leikur og ekki síður mikilvægur, því nauðsynlegt er að byrja mótið vel. Það verður töluverð pressa á heimamönnum og spurning hvernig þeir höndla hana, einnig má gera ráð fyrir því að heimadómgæsla geti leikið okkar menn grátt. Engu að síður hallast ég að tveggja marka sigri okkar manna 29 - 27. Ég ætla ekki að breyta út af vananum og bið ykkur lesendur góðir að skjóta líka á úrslit. Það er um að gera að halda í góða siði.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger