Laugardagur 10. janúar ( Ardís úr leik í Idolinu )
Óréttlæti heimsins stakk niður fæti í Smáralindinni í gær. Þvílíkur skandall. Ardís Ólöf þurfti að bíta í það súra epli að ljúka sinni þátttöku. Hins vegar komst Anna Katrín mjög óverðskuldað áfram í úrslitaþáttinn. Ég hallast aðallega að þeirri kenningu að stelpan úr Eyjafirðinum hafi fengið nokkuð mörg samúðarskeyti frá áhorfendum. Ég skil nefnilega ekki hvernig hægt er að komast áfram með svona lélegri framistöðu. Anna Katrín hefur aldrei verið í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér og þetta var klárlega hennar slakasti flutningur til þessa, ég held að fólk þurfi ekkert að velkjast í vafa um það. Ef einhvað réttlæti er til í heiminum þá á Kalli að vinna þessa keppni. Jón verður svo í öðru sæti og Anna mun verma þriðja sætið. Þannig hljóðar mín spá.
