Laugardagur 10. janúar ( Myndir vekja lukku )
Þær hafa heldur betur vakið athygli myndirnar sem Gunni Gunn tók á Broadway um áramótin. Nú er heimsóknafjöldi á myndasíðuna að komast á fimmta þúsundið. Hvað segir kappinn sjálfur um málið? "Það stóð aldrei til af minni hálfu að þetta kæmist svona víða eins og raunin hefur orðið, þetta var bara snjóbolti sem stækkaði og stækkaði" sagði Gunni Gunn í ýtarlegu viðtali við sjálfan sig nú sídegis. Aðdáendaklúbbur sálarinnar sem hefur einkarétt á birtingu mynda minna og heldur úti vefsetri á salin.is ritskoðaði nokkrar myndir sem þau hjá félaginu töldu ekki við hæfi. Hins vegar ákvað Stebbi Hilmars að linka á myndasíðuna mína alveg án þess að draga neitt undan. Eftir það fóru heimsóknunum að fjölga gríðarlega og síðustu tíðindi komu svo frá pappakassi.net að þeir hjá batman.is hefðu komist í þetta líka. Fréttastofa Valdísar hefur einnig verið vel með á nótunum í fréttaflutningi sínum og greindi frá því að fólk sé farið að kalla mig illum nöfnum í gestabókinni vegna ummæla minna sem ég skrifa fyrir neðan myndirnar. Hvað segir svo Gunni Gunn sjálfur eftir allt þetta skítkast? Ég kippi mér ekki upp við svona, læt þetta sem vind um heyru þjóta. Ég tel mig ekki vera að niðurlægja einn né neinn, fólk er bara að misskilja minn húmor. Svona krakkakjánar sem kunna ekki að meta góðan svartan húmor hafa ekkert að gera með að heimsækja síðuna mína. Sjálfur er ég bara mjög sáttur við það ef fólk telur mig útlitslega séð, líta út fyrir að vera nýkominn með bílpróf. Það er bara frábært að vera álitinn nokkrum árum yngri en maður í raun er.
