been fuelin' up on cocaine and whiskey

miðvikudagur, janúar 28, 2004


Það gengur bara betur næst

Smelltu á myndina til ad stækka Það er óhætt að segja að gengi íslenska landsliðsins hafi ollið gríðarlegum vonbrigðum á Evrópumótinu í Slóveníu. Sjálfur var ég farinn að hlakka til að fylgjast með liðinu blómstra í enn einni keppninni og ylja manni þannig um hjartarætur í svarta og kalda skammdeginu sem ríkir nú. En allt fór á versta veg, við komust ekki einu sinni upp úr þessum "auðvelda" riðli. Það er greinilegt að væntingarnar voru of miklar. Mikilvægir leikmenn að leika langt undir getu og sumir kannski ekki leikfærir vegna meiðsla. Það er hægt að draga mikinn lærdóm af þessu móti tel ég. Allar þjóðirnar sem við lékum gegn tóku Óla Stefáns úr umferð. Af hverju má ekki nota Ásgeir Örn meira? Þegar Óli er í gæslu þá getur Óli bara dottið niður í hornið. Alveg eins og í gamla daga þegar Siggi Sveins og Bjarki Sig. skiptu um stöður með góðum árangri. Þó Ásgeir hafi ekki miklu reynslu með landsliðinu, þá hefur hann hlotið töluverða eldskýrn af aðþjóðahandbolta í Meistaradeildinni með Haukum. Snorri Steinn var kláralega sá leikmaður sem kom mér hvað mest á óvart. Einnig fannst mér aldursforseti liðsins Gummi Hrafnkels komast vel frá sínu. Rúnar var í lagi og Garcia átti góða spretti þó svo að hann hafi átt afar vafasamar sendingar á köflum. Ljósmyndari Gunnars í Slóveníu, Darko Slavnic tók þessa mynd í íþróttahöllinni í Celje.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger