been fuelin' up on cocaine and whiskey

sunnudagur, janúar 11, 2004

Föstudagur 2. janúar ( Minn staður, mín stund )

- Vaknaði eldsnemma og las moggann upp í rúmi áður en ég fór í vinnuna. Sá að ljósmyndari Morgunblaðsins hafði náð mynd af berbrjósta stelpunni með djöflahornin sem ég hafði einnig myndað. Ég get montað mig af því að ég náði betri myndum en sjálfur Mogginn.
- Nú verður maður að reyna að brosa í gegnum tárin. Sætta sig við orðinn hlut, láta sem ekkert hafi í skorist. Hugsa jákvætt og vona það besta. Þetta er jú enginn heimsendir. Sálverjar hafa ákveðið að taka sér ótímabundið hlé frá tónleikahaldi. Auðvitað skil ég vel þessa ákvörðun þeirra. Strákarnir hafa verið ótrúlega atorkusamir á árinu 2003 og mættu meir að segja á þjóðhátíð til Eyja. Kærkomið frí sennilega. Það er nátturulega líka alltaf hættan á að fólk fái leið á hljómsveitum sem eru mikið í sviðsljósinu og að því leiti gæti þetta verið skynsamleg lausn, sterkur leikur. Persónulega finnst mér að þeir ættu að takmarka böllin niður í fjögur eða fimm á ári.
- Ágúst Þór Gunnarsson og Hólmfríður Sigurðardóttir buðu mér og foreldrum mínum í dýryndis kvöldmat. Skellti mér svo til systur minnar og horfði á Idolið og laumaðist í smá pizzu þar.
- Ekkert sérstaklega skemmtilegur Idol þáttur en ætli ég fylgist ekki með til enda fyrst maður byrjaði á annað borð að glápa á þetta. Mjög fyrirsjáanlegt hver myndi detta út. Tinna stóð sig alls ekki vel. Kalli kom með come back. Jón er með níu líf eins og Bubbi sagði. Anna Katrín með skásta móti fannst mér og Ardís alltaf jafn traust. Ég ætla að spá því að 500 kallinn detti út í næsta þætti. Svo segi ég ykkur eftir viku hver mun standa uppi sem sigurvegari Idol Stjörnuleitar 16. janúar í Smáralind.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger