Fimmtudagur 1. janúar 2004 ( Gleðilegt nýtt ár öll sömul og takk fyrir gömlu )
Það er ekki laust við að maður hafi fagnað nýju ári með stæl. Breezer, Sálin og Breiðvangur. Hvað getur eiginlega klikkað? segi ég nú bara. Myndavél var að sjálfsögðu með í för og þar kom í ljós að tungulipurð íslensku kvenþjóðarinnar er í hávegum höfð á samkomu sem þessari. Ég var í bráðri lífshættu fremst við sviðið vegna aðgangs eldheitra aðdáenda en komst þó óskaddaður frá þessu að vísu með ráma rödd en það telst nú bara eðlilegt. Ég var svo einstaklega heppinn að fá aðstoð við myndatöku í þetta skiptið en það var enginn annar en meistarinn sjálfur Stefán Hilmarsson sem handfjattlaði myndavél mína og tók nokkrar myndir sem sjá má hér að ofan. Afskaplega skemmtilegt að byrja nýtt ár með þessum hætti.
